Egill Olafsson - Ísland er land þitt Lyrics

Lyrics Ísland er land þitt - Egill Olafsson



Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sérð,
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósa traf.
Ísland feðranna afrekum hlúði,
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.
Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk er lind, sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur,
Íslensk er lundin með karlmennskuþor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.
Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Ísland falið þér, eilífi faðir.
Ísland frjálst, meðan sól gyllir haf.




Egill Olafsson - Örlög mín
Album Örlög mín
date of release
26-11-2013

1 Verkarinn
2 Sirkus Geira Smart
3 Sturla
4 Sigtryggur Vann...
5 Vill Einhver Elska...?
6 Hringur og bítlagæslumennirnir
7 Staldraðu við
8 Láttu mig gleyma
9 Korriró
10 Nútíminn
11 Rólegan æsing
12 Fönn, fönn, fönn
13 Söngur dýranna í Týrol '05
14 Tívolí '03
15 Grafskript
16 Pínulítill karl
17 Brúðkaupsvísur
18 Slá í gegn
19 Gegnum Holt Og Hæðir
20 Ekkert Þras
21 Orð Falla Í Stafi
22 Vetur
23 Diego Byggingameistari
24 Þó Himnarnir Hrynji
25 Miskunn dalfiska/Mánagata
26 Svefnvana mæður í Vogunum '62
27 Móðir
28 Þórdís
29 Mýs og menn
30 Blinda stúlkan
31 Ég Horfi Niður
32 Hika hika (Kl. 02:45)
33 Það Brennur
34 Leiðin Er Lengri
35 Sigling
36 Bara Að Nóttin Kæmi
37 Frá Liðnu Vori
38 Ástardúett
39 Þarna stendur þú/I'll Be Seeing You
40 Á Morgun
41 Íðilfagra Sjöfn
42 Brúðkaupsbæn
43 Í Húsi Herrans
44 Sometimes I Feel Like A Motherless Child
45 My Lord, What A Morning
46 Hvað Ætlar Þú Að Verða
47 Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn
48 Ég er maðurinn hennar Jónínu hans Jóns
49 Sveinbjörn Egilsson
50 Guttavísur
51 Ansa Mér Móðir
52 Hún Er Gimsteinn
53 Höfðingi Smiðjunnar
54 Ísland er land þitt
55 Þetta Fagra Land
56 Ljósvíkingur




Attention! Feel free to leave feedback.