Megas & Spilverk þjóðanna - Saga Úr Sveitinni paroles de chanson

paroles de chanson Saga Úr Sveitinni - Megas & Spilverk þjóðanna



Kveð ég um konu og mann
Og konan hún eldaði og spann
En karl hann var fróður
Um fornaldargróður
Kveð ég um hana og hann
Og bóndadóttir hún dró
Einn dáindis þyrskling úr sjó
Hún sett′ann í pottinn
Sótti svo þvottinn
Og loks sagð'ún: er það nóg
Þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú
Og kötturinn Meyvant fann mús
í meisnum og bauð henni dús
þau ræddu um fólsku
Frakka á pólsku
Og dreyptu á norðlenskum djús
Og kindin hún kveinaði hátt
Svo klerkur hann brotnaði í smátt
En þeir límd′ann saman
Og þótti það gaman
Honum fannst gamanið grátt
Þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú
Í haga var Búkolla á beit
Og brennandi vorsólin skeit
Og hundurinn eltist
Við hænuna og geltist
í haga var Búkolla og hún beit
Og nautið hét Hálfdán og hló
húsfreyju þegar hún
því þótti ekki klerkur
þesslega merkur
En nautið það hét Hálfdán sem hló
Þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú
Nei nautið hét Hálfdán og hlóð
á húsfreyju lof sem hún stóð
Uppi út í hlöðu
Nær hulin í töðu
úr vitunum vætlaði blóð
Og bóndasonurinn
Einn sjórekinn mannsfót og brá
á flótta hann lagði
Er fóturinn sagði:
Sonur minn segðu ekki frá
Þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú
Kvað ég um konu og mann



Writer(s): Megas


Megas & Spilverk þjóðanna - Á bleikum náttkjólum (Sérútgáfa)
Album Á bleikum náttkjólum (Sérútgáfa)
date de sortie
19-04-2016



Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.