Megas Og Senuþjófarnir - Lengi skal manninn reyna paroles de chanson

paroles de chanson Lengi skal manninn reyna - Megas Og Senuþjófarnir



Margt hugar þíns fóstur svo firna ljótt
þú felur, því illu skal leyna.
En mundu lífið er létta sótt.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Þó fátt eitt þú megnir og flest tál
Og frækorn þín hrjóti um steina,
þá mundu lífið er leyndar mál.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef tregarðu' kristur þitt traust og hald
í tötrum var þræddur á fleina
Þá mundu lífið er lausnargjald.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna
Þó besefinn virðist þér brunnið gjall
Sem brotnar er neglirðu hreina.
Þá manstu lífið er lykkju fall.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef bagar þig hugsun um börn og þras,
Og botna sem hönd þín skeina.
Þá mundu lífið er lamba gras.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef hjúskapinn eitrar þinn hrái stíll
Við hnýta' uppí bandvana sveina.
Þá manstu lífið er leigu bíll.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.
Ef sundlar þig illa þá sýra og bús
í sjöunda himin þér beina.
Þá mundu lífið er lyftu hús.
Lengi skal manninn,
Lengi skal manninn reyna.



Writer(s): þorvaldur þorsteinsson


Megas Og Senuþjófarnir - (Hugboð um) Vandræði



Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.