Teitur Magnússon - Hverra manna? paroles de chanson

paroles de chanson Hverra manna? - Teitur Magnússon



Það er svo margt í þessu lífi sem á mann er lagt
Margar kvaðir svo manni verður orðavant
Hristi hausinn og spyr:
Hverra manna erum við?
Í birtu náttlausra daga höfum gist freðna jörð
Óétnir enn af ormum, rotvarin hjörð
Hristi hausinn og spyr:
Hverra manna erum við?
Ég og þú við höfum skapað allt úr engu
Sama geimrykið sama lífsins mengun
Og er við fuðrum upp þá enginn okkur rengir
Því drengir
Við skópum allt
Nema tómið kalt
Ég og þú
Þú og ég
Við og við
Og orðin verða álög sem enginn fær flúið
Hvort sem þið efist eða trúið
Hristi hausinn og spyr
Hverra manna erum við?




Teitur Magnússon - Hverra manna?
Album Hverra manna?
date de sortie
15-05-2018




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.