Bubbi Morthens - Blóðbönd текст песни

Текст песни Blóðbönd - Bubbi Morthens



Ég þekki þá ekki sem eiga hér heima
þar sem ernir þöndum vængjum sveima.
Þar sem úlfgrátt hafið hreykir sér
þar sem hrikaleg fjöllin standa ber.
Hríslur ég fann sem festu hér rætur
Við fossinn sem vakir upp dimmar nætur.
Á heiðinni uppblásnu auðn þú finnur
þar sem örlaganornin vef sinn spinnur.
Blóðbönd hvísla kvosin
Blóðbönd hvísla mosinn
Blóðbönd hvísla sauðir
Blóðbönd hvísla dauðir
Blóðbönd hvísla fjallið, vindurinn og hafið.
Ég þekki þá ekki sem sjóinn hér sækja
Sumar sem vetur miðin sín rækja
En ég skil þá svo vel sem vilj ekki fara
Hér vaka fjöllin blá
Hér vakir lífsins þrá.
Hér lyktar sólskin af sjó og þara.



Авторы: Bubbi Morthens


Bubbi Morthens - Lögin Mín
Альбом Lögin Mín
дата релиза
24-11-2015




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.