Svavar Knútur - Haustvindar Songtexte

Songtexte Haustvindar - Svavar Knútur




Sumarið kvatt, sem aldrei kom
Og haustið, svo traust, í hlaðið reið
Settlega svæfði alla von
Um sólríka daga og kvöldin heið
Um sólríka daga og kvöldin heið
Skýin hörfa stundarbil
Og sólin loks í hæðni skín
Fuglar í nótt sjónarspil
Á flugi þúsund trampólín
Þeytast hjá þúsund trampólín
Þungir vindar blása
Þvert á alla ása
Jólatré fjúka um götur hér og þar
Vonum feykt af stalli
Vanrækt grill á palli
Minnir á ótal brostnar væntingar
Kaldar lengjast nætur
Kaldir, blautir fætur
Rignir strítt á okkar stirða geð
Ljós í regni glansa
Lauf í vindi dansa
Ekkert í boði nema dansa með
Haustvindar, haustvindar
Takið mig með, takið mig með!



Autor(en): Svavar Knutur Kristinsson



Attention! Feel free to leave feedback.