Svavar Knútur - Janúar Lyrics

Lyrics Janúar - Svavar Knútur



Myrkrið gleypir allt
En undir snjó með rammri kaldri
Rumskar janúar
Rymur hljótt og gyrðir sig í brók
Ýfða yglir brá
Augu pírð í átt kaldri sól
"Þessi fjandi dugar skammt!
Hún liggur flöt en skal á loft!"
Ó janúar, sem enginn ann
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?
Sólin rís með hægð
En bak við tjöldin böðlast Janúar
Eins og rótari
Eða ruslakall á mánudagsmorgni
Ó janúar, sem enginn ann
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?
Og eftir allt, sem hann gaf
Janúar skríður aftur undir feld
Þar til skyldan kallar enn á
Eins og snæviþakinn Batman
Ó janúar, sem enginn ann
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?
Ég þig janúar, ég man þig janúar
Sólin rís með hægð, í janúar
Myrkrið gleypir allt, í janúar
Eins og snævi þakinn Batman



Writer(s): Svavar Kristinsson


Svavar Knútur - Ahoy! Side B
Album Ahoy! Side B
date of release
19-04-2024




Attention! Feel free to leave feedback.