Hjálmar - Ferðasót paroles de chanson

paroles de chanson Ferðasót - Hjálmar



Einn ég reika um aftanbil
Ákaft á mig leita
Hugsanir sem heyra til
Hærri tíðni sveita
Í fjarska fjöllin himinhá
Fagran dalinn prýða
Læt ég tímann líða hjá
Lengi mun ég bíða
Hér er gott gista í nótt
Göngustaf minn hvíla
Þar sem ríkir húmið hljótt
Ég hlusta á vindinn ýla
Tíðkast græðgi gífurleg
Gengið allt úr skorðum
Ég vil ganga annan veg
Er völva kvað um forðum
Halda vil ég heim á leið
Hugleiða á tindi
Afl það hrindir allri neyð
Eykur vorsins yndi



Writer(s): þorsteinn Einarsson


Hjálmar - Ferðasót
Album Ferðasót
date de sortie
01-11-2007




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.