Rökkurró - Flugdrekar paroles de chanson

paroles de chanson Flugdrekar - Rökkurró



Grasið er grænna hjá þér
Og fegurra.
Það dafnar allan ársins hring.
Í garðinum blómstrar allt endalaust.
Allir lífsins litir,
Hér á sama stað.
Ég hleyp og hrasa um þína fætur.
Mér blæðir eftir fallið
En stend þó aftur upp
Og finn allt er breytt.
Þín tilvera tendrar mín vit
Og glæðir mig
Björtum ljóma.
Mér finnst ég betri nú.
Ég hleyp og hrasa um þína fætur.
Mér blæðir eftir fallið
En stend þó aftur upp
Og finn allt er breytt.
Hvaða leið sem fer,
Enda alltaf hér.
Inni í þínum garði,
Hjá rauðum rósum festi blund
En vakna þér við hlið.
Byggjum skýjaborg,
Hvítar hallir rísa.
Við flögrum upp úr garðinum
Eins og flugdrekar.



Writer(s): ARNI ARNASON, SKULI EINARSSON, HELGA RAGNARSDOTTIR, BJORN PALMASON, AXEL JONSSON, HILDUR STEFANSDOTTIR


Rökkurró - Innra
Album Innra
date de sortie
27-10-2014




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.