Skálmöld - Kvaoning (Edit - Bonus Track) paroles de chanson

paroles de chanson Kvaoning (Edit - Bonus Track) - Skálmöld



Ligg ég eftir langa drauma,
Liggur stirður, hugur sljór.
Harið finn ég kröftugt krauma,
Kreistir hefnd ef fyrrum sór.
Heiðin býr blindum,
Horfi ég mót svörtum tindum,
Hel býr þar í mörgum myndum:
Myrkur, kuldi ís og snjór.
Heljarsál af himnum steyptist,
Hafði af mér og menn.
Hatrið inn í hugann geyptist,
Heldur mér á lífi enn.
Fleyjum þínum feigðin grandi,
Finn ég þig á sjó og landi.
Kem ég til þín forni fjandi,
Fundir okkar nálgast senn.
Morgunsól á miðri heiði,
Minningarnar sækja á.
Mikil er og römm reiði,
Rífur sárin hatrið þá.
Eitt sinn átti fljóð finna
Sem fallig gætti barna minna,
En núna hef ég verk vinna:
Vega blóðga, stinga' og flá.
Höldum á feigðarinnar fund,
þetta ferðalag mun telja okkar daga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar.
Höldum á feigðarinnar fund,
þetta ferðalag er köllun vor og saga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar allra þá.
Höldum á feigðarinnar fund,
þetta ferðalag mun telja okkar daga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar.
Höldum á feigðarinnar fund,
þetta ferðalag er köllun vor og saga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar allra þá.



Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Jon Geir Johannsson, Baldur Ragnarsson, Axel Arnason, Snaebjoern Ragnarsson


Skálmöld - Baldur
Album Baldur
date de sortie
01-08-2013




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.