Árstíðir - Brestir paroles de chanson

paroles de chanson Brestir - Árstíðir



Djúpt í fylgsnum hugar
Sorginni hann leynir
á hana ekkert dugar
Kosti enga greinir
Sama hvað hann reynir
Áhrif hefur á hans
ákvarðanir allar
Sjást í skini mánans
Brestir hans og gallar
Myrkrið til hans kallar
Deginum feginn hann er
Stund milli stríða
En er dagur hallandi fer
Aftur er þjakaður kvíða
Slikju næturinnar
Umvafinn hann liggur
Fangi sorgar sinnar
Hugsar bara hyggur
Hrakinn bæði og hryggur
hugsun liggur, læðist
ófreskja hans vanda
Sem stjórnlaust áfram æðir
Um sálarinnar sanda
endingu mun granda
Deginum feginn hann er
Stund milli stríða
En er dagur hallandi fer
Aftur er þjakaður kvíða



Writer(s): Gunnar Mar Jakobsson, Karl James Pestka, Daniel Audunsson, Ragnar Olafsson, Jon Elisson, Hallgrimur Jonas Jensson


Árstíðir - Svefns Og Vöku Skil
Album Svefns Og Vöku Skil
date de sortie
05-10-2011




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.