Alestorm - Kvaðning текст песни

Текст песни Kvaðning - Alestorm



Ligg ég eftir langa drauma,
Liggur stirður, hugur sljór.
Harið finn ég kröftugt krauma,
Kreistir hefnd ef fyrrum sór.
Heiðin býr blindum,
Horfi ég mót svörtum tindum,
Hel býr þar í mörgum myndum:
Myrkur, kuldi ís og snjór.
Heljarsál af himnum steyptist,
Hafði af mér og menn.
Hatrið inn í hugann geyptist,
Heldur mér á lífi enn.
Fleyjum þínum feigðin grandi,
Finn ég þig á sjó og landi.
Kem ég til þín forni fjandi,
Fundir okkar nálgast senn.
Morgunsól á miðri heiði,
Minningarnar sækja á.
Mikil er og römm reiði,
Rífur sárin hatrið þá.
Eitt sinn átti fljóð finna
Sem fallig gætti barna minna,
En núna hef ég verk vinna:
Vega blóðga, stinga' og flá.
Höldum á feigðarinnar fund,
þetta ferðalag mun telja okkar daga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar.
Höldum á feigðarinnar fund,
þetta ferðalag er köllun vor og saga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar allra þá.



Авторы: Axel Arnason, Thrainn Arni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson, Jon Geir Johannsson, Baldur Ragnarsson, Snaebjoern Ragnarsson, Bjoergvin Sigurdsson


Alestorm - Skálstorm
Альбом Skálstorm
дата релиза
30-09-2016




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.