Hjálmar - Samhygð текст песни

Текст песни Samhygð - Hjálmar



Á bernskuskeiði braustu
Úr búðarglugga rúðu
Í gáska einskis gættir
Og greipst þér kerti og spil
Dóma harða hlaustu
Því harla fáir trúðu
eitthvað gott þú ættir
Í eðli þínu til
Kornið verður köggull
Í kjafti níðs og hroka
Frá rógsins lygnu lindum
Lækir fikra sig
Þú ert blóraböggull
Við bætum í þinn poka
Okkar eigin syndum
Og eyðileggjum þig
Við erum annars góðir
Og ætíð stoltir verðum
Þínum glæp frá gleymsku
Og glötun borgið er
Þú niðurbrotni bróðir
Sem berð á veikum herðum
Hatur vort og heimsku
Ég hræki á eftir þér



Авторы: þórsteinn Einarsson, Einar Georg Einarsson


Hjálmar - Hjálmar
Альбом Hjálmar
дата релиза
06-03-2009




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.