Текст песни Sumarkveðja - Ingi T. Lárusson feat. Jónas Ingimundarson, Hallveig Rúnarsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir & Hrönn Þráinsdóttir
Sumarkveðja
Páll Ólafsson
Ó, blessuð vertu, sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá
Nú fossar, lækir, unnir, ár sér una við þitt gyllta hár, nú fellur heitur haddur þinn um hvíta jökulkinn
Þú klæðir allt í gull og glans, þú glæðir allar vonir manns, og hvar sem tárin kvika á kinn þau kyssir geislinn þinn
Þú fyllir dalinn fuglasöng, nú finnast ekki dægrin löng, og heim í sveitir sendirðu æ úr suðri hlýjan blæ
Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt um fjöll og dali og klæðir allt og gangirðu undir gerist kalt, þá grætur þig líka allt
Ó, blessuð vertu sumarsól er sveipar gull dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá
Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.