Skálmöld - Urður текст песни

Текст песни Urður - Skálmöld




Ég er Urður, köld og kæfandi,
Kraftur minn yfir öllu er gnæfandi.
Fortíðin orðin, þú færð ekki neinu breyta.
Reynist þér hvorki sterk styðjandi,
Staulastu áfram götuna biðjandi.
Tíminn er einstigi, trúðu og hættu leita.
Orðið er orðið, liðið er liðið.
Gróið er gróið og sviðið er sviðið.
Horfið er horfið, farið er farið.
Gert er gert og ekkert skiptir
Og ekkert skiptir máli.
... og ekkert skiptir og ekkert skiptir máli.
Hún er vís og okkar elst,
Ógn í hennar gjörðum felst.
Urður.
Alltaf eru Urðar vegir
Erfiðir og hættulegir.
Enginn breytir hennar háttum,
Hún sér þig úr öllum áttum.
Allt er gert og gert er orðið,
Göldrótt leggur skil á borðið.
Skuggar lifna, skuggar dvína.
Ekkert skiptir máli.
Urður.
Ég er Urður, ég er köld og kæfandi,
Kraftur minn yfir öllu er gnæfandi.
Reynist þér hvorki sterk styðjandi,
Staulastu áfram götuna biðjandi.
Orðið er orðið, liðið er liðið.
Gróið er gróið og sviðið er sviðið.
Horfið er horfið, farið er farið.
Gert er gert og ekkert skiptir máli.
Og ekkert skiptir máli.



Авторы: Baldur Ragnarsson, Björgvin Sigurðsson, Gunnar Benediktsson, Jon Geir Johannsson, Snæbjörn Ragnarsson, þráinn árni Baldvinsson


Skálmöld - Ýdalir
Альбом Ýdalir
дата релиза
18-08-2023




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.
//}