Skálmöld - Álfheimur текст песни

Текст песни Álfheimur - Skálmöld



(Úti blæs og fjörður frýs,
Fimbulvetur ræður.
Yfir vakir álfadís,
Inni loga glæður.)
(Varúlfs heyrist vígagól,
Vargurinn er óður.
Álfabarn í krömum kjól,
Kúrir sig hjá móður.)
Hrynja og skjálfa gljúfragil,
Grýta þig bjálfar magrir.
Heima þeir sjálfir halda til,
Hér sofa álfar fagrir.
(Þrumuguðinn skóginn skók,
Skjól er Óðinn lofum.
Lesum við á lærða bók,
Leggjumst þar og sofum.)
(Álfabörn í hárri höll,
Heyrist enginn grátur.
Ráfa úti risar, tröll.
Ráðast álfagátur.)
(Kvöldin brenna kaldar senn,
Kálfsins spenna græðir.
Völdin renna aldar enn.
Álfsins penna ræðir:
Hlýja greiðir hálfa leið,
Harma- sneiðir kveinið.
Lýja reiðir álfa eið,
Arma neyðir veinið.)



Авторы: Thrainn Arni Baldvinsson, Snaebjoern Ragnarsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Baldur Ragnarsson, Jon Geir Johannsson


Skálmöld - Vögguvísur Yggdrasils
Альбом Vögguvísur Yggdrasils
дата релиза
30-09-2016




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.