Svavar Knútur - Januar текст песни

Текст песни Januar - Svavar Knútur



Myrkrið gleypir allt.
En undir snjó með rammri kaldri
Rumskar janúar,
Rymur hljótt og gyrðir sig í brók
Ýfða yglir brá,
Augu pírð í átt kaldri sól.
"Þessi fjandi dugar skammt!
Hún liggur flöt en skal á loft!"
Ó janúar, sem enginn ann.
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?
Sólin rís með hægð,
En bak við tjöldin böðlast Janúar.
Eins og rótari
Eða ruslakall á mánudagsmorgni.
Ó janúar, sem enginn ann.
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?
Og eftir allt, sem hann gaf.
Janúar skríður aftur undir feld.
Þar til skyldan kallar enn á ný,
Eins og snæviþakinn Batman.
Ó janúar, sem enginn ann.
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf
Ég man þig janúar. Ég þig janúar.



Авторы: Svavar Knútur Kristinsson


Svavar Knútur - Januar
Альбом Januar
дата релиза
27-09-2019

1 Januar




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.