Svavar Knútur - Ferðalok paroles de chanson

paroles de chanson Ferðalok - Svavar Knútur



Ástarstjörnu
Yfir Hraundranga
Skýla næturský;
Hló hún á himni,
Hryggur þráir
Sveinn í djúpum dali.
Greiddi ég þér lokka
Við Galtará
Vel og vandlega;
Brosa blómvarir,
Blika sjónstjörnur,
Roðnar heitur hlýr.
Háa skilur hnetti
Himingeimur,
Blað skilur bakka og egg;
En anda, sem unnast,
Fær aldregi
Eilífð skilið.



Writer(s): Atli Heimir Sveinsson, Jónas Hallgrímsson


Svavar Knútur - Amma (Songs for My Grandmother
Album Amma (Songs for My Grandmother
date de sortie
21-11-2010




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.