Svavar Knútur - Sofðu Unga Ástin Mín paroles de chanson

paroles de chanson Sofðu Unga Ástin Mín - Svavar Knútur



Sofðu, unga ástin mín,
úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
Gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Það er margt sem myrkrið veit,
Minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
Svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
Seint mun bezt vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
Meðan hallar degi skjótt,
mennirnir elska, missa, gráta og sakna.



Writer(s): Traditional, Hugi Gudmundsson, Ragnheidur Grondal, Johann Sigurjonsson, Haukur Grondal


Svavar Knútur - Amma (Songs for My Grandmother
Album Amma (Songs for My Grandmother
date de sortie
21-11-2010




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.