Bubbi Morthens - Með Vindinum Kemur Kvíðinn Lyrics

Lyrics Með Vindinum Kemur Kvíðinn - Bubbi Morthens




Fyrir vestan er veturinn stríður
Vokir yfir byggð og tíminn líður.
Með sólvana daga, dapurlegan róm
Dreymir ekki alla himnanna blóm.
Vegirnir lokast, veturinn hamast
Vörnin er engin, þorpið lamast.
Menn horfa upp í hlíðina, sjá ekki neitt
Himinn og jörð renna saman í eitt.
Dag eftir dag snjónum kyngdi niður
Dúnmjúk mjöll, þessi hvíti friður.
Í rökkrinu þorpið sýndist svo smátt
Svo fór hann hvessa úr annarri átt.
Og með vindinum kemur kvíðinn
úti er kolsvört hríðin.
Og fjallið það öskrar svo fellur öll hlíðin
Og húsin þau hverfa í kófið.
Eitt andartak stóð tíminn kyrr
æddi síðan inn um glugga og dyr.
Hreif burt vonir, reif upp rætur
Einhvers staðar engill grætur.
Hvers vegna hér - menn spá og spyrja
Spurningar flæða hvar á byrja.
Fólkið á þig kallar Kristur
Kvölin nístir bræður og systur.
Tárin eru leið til lækna undir
Lífið er aðeins þessar stundir.
Gangverk lífsins þau látlaust tifa
Og við lærum með sorginni lifa.
Og með vindinum kemur kvíðinn
úti er kolsvört hríðin.
Og fjallið það öskrar svo fellur öll hlíðin
Og húsin þau hverfa í kófið.
Og með vindinum kemur kvíðinn
úti er kolsvört hríðin.
Og fjallið það öskrar svo fellur öll hlíðin
Og húsin þau hverfa í kófið
Og fjallið það öskrar svo fellur öll hlíðin
Og húsin þau hverfa í kófið.



Writer(s): bubbi morthens


Bubbi Morthens - Sögur Af Ást, Landi Og Þjóð 1980-2010
Album Sögur Af Ást, Landi Og Þjóð 1980-2010
date of release
18-02-2016

1 Ísbjarnarblús
2 Hiroshima
3 Stórir Strákar Fá Raflost
4 Fjöllin Hafa Vakað
5 Lög og regla
6 Blindsker
7 Kona
8 Er nauðsynlegt að skjóta þá?
9 Háflóð
10 Syneta
11 Fjólublátt flauel
12 Kossar án vara
13 Það er gott að elska
14 Sumar konur
15 Með Vindinum Kemur Kvíðinn
16 Við gróttu
17 1000 kossa nótt
18 Fallegi Lúserinn Minn
19 Sól
20 Stál og hnífur
21 Agnes og Friðrik
22 Ha Ha Ha (Rækjureggae)
23 Móðir
24 Afgan
25 Strákarnir á Borginni
26 Talað við gluggann
27 Augun mín
28 Aldrei fór ég suður
29 Foxtrot
30 Sonnetta
31 Þingmannagæla
32 Sem aldrei fyrr
33 Brotin loforð
34 Með þér
35 Kveðja
36 Ástin getur aldrei orðið gömul frétt
37 Grafir og bein
38 Engill Ræður För
39 Hrognin eru að koma
40 Kyrrlátt Kvöld
41 Bólivar
42 Mescalin
43 Leyndarmál Frægðarinnar
44 Rómeó og Júlía
45 Serbinn
46 Frelsarans slóð
47 Silfraður bogi
48 Friðargarðurinn
49 Stúlkan sem starir á hafið
50 Sumarið er tíminn
51 Afkvæmi hugsana minna
52 Trúir þú á engla
53 Jesús Pétur Kiljan og hin heilaga jómfrú og aumingja ég
54 Fallegur dagur
55 Í Hjarta Mér




Attention! Feel free to leave feedback.