Skálmöld - Kvadning (Edit - Bonus Track) Lyrics

Lyrics Kvadning (Edit - Bonus Track) - Skálmöld



Ligg ég eftir langa drauma,
Leggur stirður, hugur sljór.
Hatrið finn eg kröftugt krauma,
Kreystir hefnd er fyrrum sór.
Heiðin býr hættum blindum,
Horfi ég mót svörtum tindum,
Hel býr þar í mörgum myndum;
Myrkur, kuldi, ís og snjór.
Heljarsál af himnum steyptist
Hafði aqf mér og menn.
Hatrið inn í human greyptist,
Heldur í mér lífi enn.
Fleyjum þínumfeigðin grandi,
Finn ég þig á sjó og landi.
Kem ég til þín forni fjandi,
Fundir okkar nálgast senn.
Morgunsól á miðri heiði,
Minningarnar sækja á.
Mikil er og römm reiði,
Rífur sárin hatrið þá.
Eitt sinn átti fljóð finna
Sam falleg gætti barna minna,
En núna hef ég verk vinna;
Vega, blóðga, stinga' og flá.
Höldum á feigðarinnar fund
þetta ferðalag mun telja okkar daga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar.
Höldum á feigðarinnar fund
þetta ferðalag er köllun vor og saga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar allra þá.



Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson


Skálmöld - Baldur
Album Baldur
date of release
09-08-2011




Attention! Feel free to leave feedback.