Skálmöld - Kvaðning Lyrics

Lyrics Kvaðning - Skálmöld



Ligg ég eftir langa drauma,
Leggur stirður, hugur sljór.
Hatrið finn ég kröftugt krauma,
Kreistir hefnd ef fyrrum sór.
Heiðin býr hættum blindum,
Horfi ég mót svörtum tindum,
Hel býr þar í mörgum myndum:
Myrkur, kuldi ís og snjór.
Heljarsál af himnum steyptist,
Hafði af mér og menn.
Hatrið inn í hugann greyptist,
Heldur mér á lífi enn.
Fleyjum þínum feigðin grandi,
Finn ég þig á sjó og landi.
Kem ég til þín forni fjandi,
Fundir okkar nálgast senn.
Morgunsól á miðri heiði,
Minningarnar sækja á.
Mikil er og römm reiði,
Rífur sárin hatrið þá.
Eitt sinn átti fljóð finna
Sem fallig gætti barna minna,
En núna hef ég verk vinna:
Vega blóðga, stinga' og flá.
Höldum á feigðarinnar fund,
Þetta ferðalag mun telja okkar daga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar.
Höldum á feigðarinnar fund,
Þetta ferðalag er köllun vor og saga.
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar allra þá.



Writer(s): Axel Arnason, Baldur Ragnarsson, Thrainn Arni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Snaebjoern Ragnarsson, Jon Geir Johannsson


Skálmöld - Baldur
Album Baldur
date of release
15-12-2010




Attention! Feel free to leave feedback.