Helgi Halldórsson - Komdu kisa mín - Þambara vambara paroles de chanson

paroles de chanson Komdu kisa mín - Þambara vambara - Helgi Halldórsson




Þambara, vambara, þeysisprettir,
því eru hér svo margir kettir?
Agara gagara yndisgrænum,
Illt er hafa þá marga á bænum.
Komdu kisa mín,
Kló er falleg þín
Og grátt þitt gamla trýn.
Mikið malar þú,
Mér það líkar nú,
Víst ertu vænsta hjú.
Banar margri mús,
Mitt þú friðar hús,
Ekki er í þér lús,
Oft þú spilar brús.
Þambara, vambara, þeysisprettir,
því eru hér svo margir kettir?
Agara gagara yndisgrænum,
Illt er hafa þá marga á bænum.
Undrasniðug,
Létt og liðug
Leikur bæði snör og fús,
Við skulum drekka dús.
Komdu kisa mín,
Kló er falleg þín
Og grátt þitt gamla trýn.
Mikið malar þú,
Mér það líkar nú,
Víst ertu vænsta hjú.
Banar margri mús,
Mitt þú friðar hús,
Ekki er í þér lús,
Oft þú spilar brús.
Þambara, vambara, þeysisprettir,
því eru hér svo margir kettir?
Agara gagara yndisgrænum,
Illt er hafa þá marga á bænum.
Þambara, vambara, þeysisprettir,
því eru hér svo margir kettir?
Agara gagara yndisgrænum,
Illt er hafa þá marga á bænum.
Þambara, vambara, þeysisprettir,
því eru hér svo margir kettir?



Writer(s): Björgvin Halldórsson, Gunnar Thordarson


Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.