Logar - Minning Um Mann paroles de chanson

paroles de chanson Minning Um Mann - Logar




Nú ætla ég að syngja ykkur lítið fallegt ljóð um ljúfan dreng sem fallinn er nú frá um dreng sem áttir sorgir en ávalt samt þó stóð spertur þótt sitt hvað gengi á. Í kofaskrifli bjó hann sem lítinn veitti il svo andvaka á nóttum oft hann lá. á Portúgal hann teigaði það gerði ekkert til það tókst með honum yl í sig að fá. Þið þekktuð þennan mann,
þið alloft sáuð hann,
Drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
Börnum var hann góður, en sum þó hræddust hann,
Hæddu hann og gerðu að honum gys.
Þau þekktu ei litlu greyin þennan mæta mann,
Já, margt er það sem börnin fara á mis.
Munið þið að dæma ei eftir útlitinu menn,
En ýmsum yfir þessa hluti sést.
Því til er það að flagð er undir fögru skinni enn
En fegurðin að innan þykir best.
Nú ljóðið er á enda um þennan sómasvein,
Sem að þráði brennivín og sæ.
Hann liggur nú á kistubotni og lúin hvílir bein,
í kirkjugarði í Vestmannaeyjabæ.



Writer(s): Gylfi Aegisson


Logar - 100 íslensk 70's lög




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.