Skálmöld - Dauði (Live) paroles de chanson

paroles de chanson Dauði (Live) - Skálmöld



Ligg ég, leka mín sár,
Loppinn kólnar minn nár.
Dauðinn dregur mig nær,
Dettur yfir mig snær.
Lið mitt liggur hjá mér,
Látin hersingin er.
Hetjur höfðu það af,
Hefndin frið okkur gaf.
Hinsta dreg ég andardráttinn,
Drengur Óðins missir máttinn.
Sortinn teygir sína arma,
Sól úr austri kastar bjarma.
Loksins reiði lægja öldur,
Laskað sverð og brotinn skjöldur.
Bros á varir Baldurs færist,
Bræðralagið aldrei tærist.
Vígamaður Baldur Óðinsson!
Gunnar jarl og Grímur deyja,
Guðirnir þá munu heygja.
Vargurinn í valinn beygður,
Verður seint af nokkrum heygður.
Brosi til barna minna,
Brátt mun öllum sorgum linna.
Kæra ég konu mína
Kúra upp við syni sína.
er ekki neinn sem lifir,
Nóttin hellist kolsvört yfir.
Líf í Baldurs auga blikar,
Bíður dauðinn, aðeins hikar.
Upp er runnin stóra stundin,
Stöðvast allt við hinsta blundinn.
Blæs úr norðri, bærast stráin,
Baldur er loksins dáinn!



Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson


Skálmöld - Vögguvísur Yggdrasils
Album Vögguvísur Yggdrasils
date de sortie
30-09-2016




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.