Skálmöld - Með Fuglum paroles de chanson

paroles de chanson Með Fuglum - Skálmöld



Fugl er stærstur Fróni á,
Fjallstindanna milli
Vængjafjaðrir.
Vindinn aðrir
Vinir honum kljúfa hjá.
Kornung þegar komu fyrst
Kynjaskrímsli, svöng og þyrst.
Fjalls- af þaki
Flaug á baki
Fuglinum sem ríkir nyrst.
Blésu hana bitrum móð,
Barði frá sér Íslands fljóð.
Þegnar sváfu.
Þessa gáfu
Þórunn fann er leit hún blóð.
Fyrsta stríð af fjórum vannst,
Fréttist víða, sagan spannst.
Þó í ljóðum
þessum góðum
Þórunn hvergi fyrirfannst.
Með fuglum.
Með fuglum.
Þórunn hvergi fyrirfannst.
Með fuglum.
Með fuglum.
Þín var ævin þrettán ár
þegar fórst með fuglum,
Fálkum, örnum, uglum.
Þá var himinn þungur, grár,
þegar fórst með fuglum.
Þórunn var orðin þrettán ára,
þegar hún fór með fuglum.
Barðist við djöfla og fjanda, fjára,
þegar hún fór með fuglum.
Skammt milli gleði- og tregatára,
þegar hún fór með fuglum.
Lærði svo myndi lífið klára,
þegar hún fór með fuglum.
Með fuglum.
Með fuglum.
Þegar hún fór með fuglum.
Með fuglum.
Með fuglum.
Þegar sváfu flestir fast
Fuglar vörðu björgin.
Sökkva lík er sameinast
Sverðin fyrir Fjörgyn.
Nötraði allt Norðurland,
Níð skal vondum banna.
Treysti verðmætt vinaband
Vættur meðal manna.



Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson, Snaebjoern Ragnarsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Baldur Ragnarsson, Jon Geir Johannsson


Skálmöld - Með Vættum
Album Með Vættum
date de sortie
01-01-2014




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.