Svavar Knútur - Draumveran paroles de chanson

paroles de chanson Draumveran - Svavar Knútur



Handan við höfin
Handan við fjöllin blá,
Hulin í móðu,
Hvílir mín hjartans þrá.
Dvelur í djúpunum draumveran tær.
Svífur í skýjunum seiðir mig nær.
Frjálsleg, frakklynd, fögur sem hvítagull.
Göfug, vitur, glettin og galsafull.
Finn ég svo vel hvernig hjarta hennar slær.
Finn ég draumveran færist mér nær.
Ég veit okkur dreymir,
Sama lækinn,
Sama tunglskinsdansinn.
Ég finn hún nálgast,
Heyri hennar hjarta slá.
Sólin, skýin,
Segja mér henni frá.
Finn ég svo vel hvernig hjarta hennar slær.
Finn ég draumveran færist mér nær.



Writer(s): Svavar Kristinsson


Svavar Knútur - Kvöldvaka
Album Kvöldvaka
date de sortie
07-01-2011




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.