KK feat. Magnús Eiríksson - Jesús Kristur og ég текст песни

Текст песни Jesús Kristur og ég - Magnús Eiríksson , KK




Hér sit ég einn með sjálfstraustið mitt veika,
á svörtum kletti' er aldan leikur við.
Á milli skýja tifar tunglið bleika
Og trillubátar róa fram á mið.
Af synd og fleiru sál mín virðist brunnin.
Ó, sestu hjá mér, góði Jesú nú,
því bæði ertu af æðstu ættum runninn
Og enginn þekkir Guð betur en þú.
Ég veit þú þekkir einnig eðli fjandans
Sem alla daga situr fyrir mér.
Og þótt ég tali vart í auðmýkt andans
Ber enginn dýpri respekt fyrir þér.
Hvað sem trú vor týndum sauði lofar
Ef taglsins auðmýkt nær í hjartað inn,
Mig langar til, er tunglið færist ofar,
tala við þig eins og bróður minn.
En hvern þann sem hrellir mest og blekkir
Heldur fólkið jafnan bestan mann.
Það skyldi engan undra sem þekkir
Eitthvert brot af þessum lífins rann.
Ó, Jesús mínn, þótt ég og þú sért firrtur
Og jafnvel hún sem eitt sinn fæddi þig,
því almennt varstu ekki' af góðu virtur
Og ennþá síður virðir fólkið mig.
Og um það mál við aldrei megum kvarta
því uppi á himnum slíkt er kallað suð.
En ósköp skrýtið er eiga hjarta
Sem ekki fær tala við sinn Guð.
Hver síðastur þú sagðir yrði fyrstur,
En svona varð endirinn með þig.
Og úr því þeir krossfestu þig, Kristur,
Hvað gera þeir við ræfil eins og mig?



Авторы: Magnus Eiriksson, Vilhjalmur Fra Skaholti Gudmundsson


Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.