Bubbi Morthens - Sandurinn í glasinu Lyrics

Lyrics Sandurinn í glasinu - Bubbi Morthens



Trúirðu því ég vona þú komir aftur
við tvö gætum orðið eitt.
Elskað með þér, deyja síðan sáttur
Hverfa í algleymið, verða ekki neitt.
Sjá þig brosandi þekkja augun aftur
Fara höndum um eirlitað hár.
hvísla nafn þitt aftur og aftur
Vona augnablikið verði sem þúsund ár.
En sandurinn í glasinu skeytir ekki um mig
Flæðir upp í vit mín, drekkur minn þrótt.
Já, komdu og taktu mig milli handa þinna
Og breyttu deginum í nótt.
Ég vona leið þín liggi til mín
Ljósið í glugganum lifir í nótt.
Það mun lifa þar til ég til þín
þá fyrst mun ég sofa rótt.
Sjá þig brosandi þekkja augun aftur
Fara höndum um eirlitað hár.
hvísla nafn þitt aftur og aftur
Vona augnablikið verði sem þúsund ár.
En sandurinn í glasinu skeytir ekki um mig
Flæðir upp í vit mín, drekkur minn þrótt.
Já, komdu og taktu mig milli handa þinna
Og breyttu deginum í nótt
Og breyttu deginum í nótt.
Ba, da, pa, da, pa...



Writer(s): Bubbi Morthens


Bubbi Morthens - Bubbi og Stórsveit Reykjavíkur
Album Bubbi og Stórsveit Reykjavíkur
date of release
24-10-2015




Attention! Feel free to leave feedback.