Hatari - Biðröð Mistaka Lyrics

Lyrics Biðröð Mistaka - Hatari



Aragrúi vonlausra væntinga
Eins og óútfyllanlegt eyðublað
Ótæmandi listi vonbrigða, sjálfsvorkunar
Vottaður stimpli fyrirlitningar
Dagur sérhver, biðröð mistaka
Biðröð mistaka
Reginskari hálfreyndra hugmynda
Eins og ástarbréf ofan í tætara
Ævistarfi raðað í kompuna, neðstu hilluna
Ólesnir, rykfallnir doðrantar
Dagur sérhver, biðröð mistaka
Biðröð mistaka
Nauðbeygður opnarðu augun
Þú vissir aldrei ég elska þig
Þú varst hatari
Þrálátur en samt svo þögull
Hrópandinn í eyðimörkinni
Þú hataðir
Nauðbeygður opnarðu augun
Þú vissir aldrei ég elska þig
Þú varst hatari
Þrálátur en samt svo þögull
Hrópandinn í eyðimörkinni
Þú hataðir
Biðröð mistaka
Eins og ástarbréf ofan í tætara
Aragrúi, aragrúi vonlausra væntinga
Biðröð mistaka




Hatari - Neysluvara
Album Neysluvara
date of release
31-10-2017




Attention! Feel free to leave feedback.