Hatari - Ódýr Lyrics

Lyrics Ódýr - Hatari



Árin renna frá þér eins og brauðmylsnum er hent í ruslatunnu.
Þau safnast saman á haugum brostinna drauma.
Þú lítur til baka og hugsar:
Afhverju seldi ég mig
ekki fyrir meira?
Næturnar verða ekki mikið fleiri eftir þetta.
Ævi þín er útbrunninn stubbur í hringiðandi öskubakka.
Þú lítur til baka og hugsar:
Afhverju seldi ég mig
Öskunni er stráð yfir kistuna og um leið man enginn hver þú varst.
Ekkert fyrirfinnst jafn ómerkilegt og ævin sem var við ljúka.
Þú stóðst ekki fastar á þínu en svo
enginn kærir sig um minningu þína.
Við tekur hyldýpi svartnættis og eilíf eymd í botnlausri algleymsku.
Ég fel mig undir laki
sem kuldinn hefur þakið.
Nóttin starir þögul
hún segir lygasögur.
Tómið svífur mér
berleggjaður berst ég.
Banasæng ég mér.
Banasæng ég mér.
Árin runnu frá þér eins og brauðmylsnum var stráð í ruslatunnu.
Þau söfnuðust saman á haugum brostinna drauma.
Hversu oft var það sem þú leist til baka og hugsaðir:
Afhverju seldi ég mig
ekki fyrir meira?




Hatari - Neysluvara
Album Neysluvara
date of release
31-10-2017




Attention! Feel free to leave feedback.