Skálmöld - Að Vori Lyrics

Lyrics Að Vori - Skálmöld



Þórunn Auðna, þá hún fæddist
þungt var yfir Ísafold
Eymd sem allt um og læddist
Loftið sverti, vötn og mold
Myrkur vori á Melrakkasléttu
Meybarn var borið í óþökk og nauð
Fátæk og horuð hún fæddist, með réttu
Fyrst voru sporin öll hamingjusnauð
Þakkir fær er Þórunni sendi
þakkir af einingu
Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi
Barnið með meiningu
Þórunn Auðna, þá hún fæddist
þeyr blés yfir dal og tún
Varla neina hún hræddist
Varin undir galdrarún
Þakkir fær er Þórunni sendi
þakkir af einingu góðar
Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi
Barnið með meiningu þjóðar
Fyrst varð hún móðurlaus, föðurlaus siðan
Fjöllin og gróðurinn tóku sér
Ljóshærða flóðið með lokkinn svo friðan
Læst hennar blóðbönd í örlagakver
Ég veit ekki hvar hún æskunni eyddi
Eða hvar hófst hennar ferð
hvað það var sem götuna greiddi
Gaf henni bogann og sverð
Þórunn Auðna, þá hún fæddist
þa blés von um Íslandsströnd
Neistinn fyrir norðan glæddist
Nytsamleg hjálparhönd



Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson, Snaebjoern Ragnarsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Baldur Ragnarsson, Jon Geir Johannsson


Skálmöld - Með Vættum
Album Með Vættum
date of release
01-01-2014




Attention! Feel free to leave feedback.