Skálmöld - Niðavellir Lyrics

Lyrics Niðavellir - Skálmöld



Niðavellir, náhvítur máninn skín.
Dvergahellir, dulúð þér villir sýn.
Sindradætur, synir og börnin öll,
Vetrarnætur, verma þau klettafjöll.
Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa
Komið inn í hellinn því hér, hér er gott sofa
Hér er gott sofa
Galdrastafir, grafnir í stóran stein,
Dvergagrafir, dysjar og gömul bein
Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal
Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal
Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa
Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott sofa
Hér er gott sofa
Trónir á mergi tinnugler,
Tindar úr bergi háir
Sindri og Hergill halla sér,
Hér sofa dvergar gráir
Heyr, mín kæra hefðarfrú,
Hér er gott sofa
Á sig taka náðir nú,
Niðahjón og börnin þrjú
Þegar heyrist þrumugnýr,
Þór við skulum lofa
Okkur geymir hellir hlýr,
Hér er gott sofa
Náinn syngur næturljóð,
Núna sefur dvergaþjóð.



Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson, Snaebjoern Ragnarsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Baldur Ragnarsson, Jon Geir Johannsson


Skálmöld - Nidavellir
Album Nidavellir
date of release
02-09-2016




Attention! Feel free to leave feedback.