Skálmöld - Upprisa (Live - Bonus Track) Lyrics

Lyrics Upprisa (Live - Bonus Track) - Skálmöld



Risin upp af jörðu, reikul eru spor,
Röddin brostin, andinn sár og lamað er mitt þor.
Gen ég upp Vörðu, gái yfir brún,
Garður hruninn, bæjarrúst og sviðin öll mín tún.
Óðinn!
Heimdallur!
Himnahallir!
Baldur!
Forseti!
Æsir allir!
Aumkið ykkur yfir mig, blásið mér í brjóst
Baráttu- og hefndarmóð, núna er mér ljóst
það er verk sem út af stendur, ég verð sinna því,
Valinn þekja fallnir, svartan himin kólguský.
Stillið mínar hendur, styrkið þreyttan fót,
Styðjið við mig, bræður, sækið axir, sverð og spjót.
Nár við fætur liggur, nidd er sérhver taug,
Núna söfnum líkunum og leggjum þau í haug.
Hugurinn er styggur, hefndarþorstinn sár,
Heiðin geymir friðþægingu upp við Jökulsár.
Upprisinn á ögurstund,
örlög skapa hetjulund.
Loksins núna léttast spr,
Lyftist brún og eflist þor.
Birginn þannig býður þeim
Bitvargi úr Heljarheim.
Heldur hann í veika von,
Vígamaður Óðinsson.
Rís hann upp og sjá Ég er afli gæddur!
Ríður burtu Gná Þessi ógnarkraftur!
Berserkur upp rís Ég er Baldur fæddur!
Bliknar heilladís Ég kem aldrei aftur!
Ríðum móti hættum, ríðum yfir heiði.
Ríðum móti vættum, leggjum í eyði.
Upp er risinn Baldur Óðinsson!
Hefnum fyrir vígin, hættur okkur lokka.
Heiman fetum stíginn, seint mun klárinn borkka.
Upp er risinn Baldur Óðinsson



Writer(s): Baldur Ragnarsson, Björgvin Sigurðsson, Gunnar Ben, Jon Geir Johannsson, Snæbjörn Ragnarsson, þráinn árni Baldvinsson


Skálmöld - Vogguvisur Yggdrasils
Album Vogguvisur Yggdrasils
date of release
30-09-2016




Attention! Feel free to leave feedback.