Skálmöld - Miðgarður Lyrics

Lyrics Miðgarður - Skálmöld



Manstu hvað gerðist í Miðgarði þá?
(Ég sá, ég sá.)
Margt fyrir löngu var búið til lag,
Ljóðið svo skrautlega skrifað.
Hetju sem barðist við vængjaða vá?
(Ég sá, ég sá.)
Baldur sem barðist af drengskap þann dag,
svo við gætum lifað.
Vafrandi enn um hrollkalt hraun,
Hrakin sig glennir vofa.
Hitinn frá brennu huggar raun,
Hér sofa menn í kofa.
(Kvöld úr norðri, kalt í hlíðum,
Knýr dyrum myrkrið svart.
Þolinmóð við þannig bíðum
þess verði aftur bjart.)
(Traustur máttur réttra rúna
Róar geð er vindur hvín.
Sorgir allar sefast núna,
Sofðu, unga ástin mín.)



Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson, Snaebjoern Ragnarsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Baldur Ragnarsson, Jon Geir Johannsson



Attention! Feel free to leave feedback.