Hjálmar - Bréfið paroles de chanson

paroles de chanson Bréfið - Hjálmar



Ég skrifa bréf þótt skaki vindar hreysi
Og skrifta fyrir þér
Ég tíunda mitt eigið auðnuleysi
Og allt sem miður fer
Því hafin yfir hversdagsleikann gráa
Ert þú hjartans vina mín
Ég ljósið slekk og langt í fjarskann bláa
Leitar hugurinn til þín
Svo ber ég eld bréfkorninu mínu
Þá batnar vistin hér
Því fölur loginn fyllist brosi þínu
Sem fyrirgefur mér
Og þannig brúar þessi litla skíma
Þagnarinnar hyl
Þú huldumey sem handan rúms og tíma
Hefðir getað verið til
Svo ber ég eld bréfkorninu mínu
Þá batnar vistin hér
Því fölur loginn fyllist brosi þínu
Sem fyrirgefur mér
Og þannig brúar þessi litla skíma
Þagnarinnar hyl
Þú huldumey sem handan rúms og tíma
Hefðir getað verið til



Writer(s): Thorsteinn Einarsson


Hjálmar - Hljóðlega Af Stað
Album Hljóðlega Af Stað
date de sortie
08-03-2009




Attention! N'hésitez pas à laisser des commentaires.