Bubbi Morthens - Elliðaárþula текст песни

Текст песни Elliðaárþula - Bubbi Morthens



Stríðir straumar falla, stundum er flóð.
Þá stekkur hann fossinn, finnur sína slóð.
Stríðir straumar falla, stundum er flóð.
Þá stekkur hann fossinn, finnur sína slóð.
Eitt sinn rann silfurbjört áin alla leið
Eftir dalnum drengur minn, draumfull og breið.
Söng hún sína þulu, fornann fagrann seið,
Söng hún sína þulu, mörg eru mannanna verkin leið.
Stríðir straumar falla, stundum er flóð.
Þá stekkur hann fossinn, finnur sína slóð.
Stríðir straumar falla, stundum er flóð.
Fáir rata í fossinn, finna sína slóð.
Þá var hún full af fiski, fannst í hverjum hyl.
Hrygna og hængur sem hérna urðu til.
Þá var áin hrein og tær,
Vorsins laxi var hún fær.
Engin hindrun, öðru nær.
Þá var hún prýði,
þá var hún dalsins prýði.
Stríðir straumar falla, stundum er flóð.
Fáir rata í fossinn, finna sína slóð.
Stríðir straumar falla, stundum er flóð.
Fáir rata í fossinn, finna sína slóð.
Horfinn er Svuntufoss, Ullarfoss.
Hefur þú séð þá renna?
Horfinn er Arnarfoss, Búrfoss.
Hverju er um kenna?
Mörg eru mannanna verkin leið.
Ekki rennur áin mín lengur greið,
Ekki rennur áin mín lengur greið.
Stríðir straumar falla, stundum er flóð.




Bubbi Morthens - Sól Að Morgni
Альбом Sól Að Morgni
дата релиза
16-11-2015




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.