Bubbi Morthens - Kveðja текст песни

Текст песни Kveðja - Bubbi Morthens



Þar sem englarnir syngja sefur þú
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
ljósið bjarta skæra
Veki þig með sól morgni
Veki þig með sól morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljóss
Lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
Tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól morgni
þú vekur hann með sól morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
Lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
Vekja hann með sól morgni
Vekja hann með sól morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
Svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál
Slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól morgni
Svo vaknar hann með sól morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
Aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól morgni
Svo vöknum við með sól morgni.
Svo vöknum við með sól morgni
Svo vöknum við með sól morgni.



Авторы: Bubbi Morthens


Bubbi Morthens - Sól Að Morgni
Альбом Sól Að Morgni
дата релиза
16-11-2015




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.