Bubbi Morthens - Þar Sem Gemsarnir Aldrei Þagna текст песни

Текст песни Þar Sem Gemsarnir Aldrei Þagna - Bubbi Morthens



Útúr húminu kemur dauðinn, kveður þig á sinn fund.
Köldum rómi tilkynnir, upprunnin er þín stund.
Fyrir utan býður Djöfullinn, og brosir undur blýtt.
Bugtar sig og hneigir með hárið, kolsvart sítt.
Þú sest inn í limmuna sem leggur hljóð af stað.
Við stýrið situr drýsill sem hatar orðið, bað.
Þú spyrð: Er ég dauður, eða dreymir mig þetta bull?
Hann svarar: Drekktu vinur þín flaska er ennþá full.
Í helvíti er svört sól, alkóhól, allrahanda kynlífstól
Eiturlyf sem brenna þig upp til agna.
Ríki mitt er king zise,
Extra large, jumbo, turbo, djúsí, næs.
Og í helvíti gemsarnir aldrei þagna.
Inn í bílnum finnst þér hitinn orðinn ískyggilega hár.
Í speglinum sérðu framan í þig, þú ert verða blár.
Þú hneppir frá þer skyrtunni og skilur hver staðan er.
Skjálfandi, þurrkar svitann framan úr þér.
Þið keyrið inn í myrkrið, moldarfnykur í lofti er.
Martröðin vælir stjórnlaust í höfðinu á þér.
Hinn fallni engill hvíslar í eyrað ofur lágt.
Engin leið til baka, það er bara þessi átt.
Í helvíti er svört sól, alkóhól, allrahanda illskufól.
Halltu áfram bölva og ragna.
Vertu velkominn ljúfurinn
Líkkaldi stúfurinn.
Í helvíti gemsarnir aldrei þagna.
Þér er boðið upp á kókaín og útglent, rökuð klof.
Og endalausa fullnægingu, þar til þú færð flog.
Hér enda engar nautnir og nóttin er endalaus.
Hann nýstir þig sársaukinn og hjartað í þér fraus.
Hér átt þú nóg af seðlum sem þú getur aldrei eytt.
Engann færðu svefninn, hér er allt svo rakt og sveitt.
Hér er hann harður eins og grjót, gýs eins og hver.
Gráttu núna gæskurinn, þín staða vonleus er.
Í helvíti er svört sól, alkóhól, ormaétin barnaból.
Þín býður djöfulls ofboðsleg pína.
Þín mesta martröð við þér gín
Bróðir reyndu njóta þín.
Og í helvíti er ætíð opin gemsalína.
Það er furðulegt en þú finnur, tíminn stendur kyrr.
Þú ert fastur í lókali sem hefur engar dyr.
Hér er enginn endir, hér endar ekki neitt.
Of mikið af öllu og þú getur engu breytt.
Þú veist þú þarft þjóna húsbónda þínum vel.
Þú valdir í lifandi lífi, ráða þig hjá hel.
Of seint hrópa á hjálp, þín býður þetta bál.
Fyrir löngu síðan seldir þú dýrinu þína sál.
Í helvíti er svört sól, alkóhól, allrahanda morðtól.
Helvíti er við allra hæfi.
Við sækjum þig í leigubíl
Leyfum þér halda þínum persónulega stíl.
Og í helvíti dugar gemsinn heila mannsævi.



Авторы: Bubbi Morthens


Bubbi Morthens - Sól Að Morgni
Альбом Sól Að Morgni
дата релиза
16-11-2015




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.