Bubbi Morthens - Grænland текст песни

Текст песни Grænland - Bubbi Morthens



Þegar þú komst af veiðum
Með nýskutlaðan sel
Sólahringum saman í leyni,
Slydda stormur og él.
Þegar hafísinn kom inná firðina
Hvarf selurinn á brott
ísinn var of þykkur fyrir rostungana,
Hundarnir dóu, þið liðuð skort.
Ó, þú mikli veiðimaður,
það er sárt horfa á.
Þeir troða ykkur niður í svaðið,
Rífa upp með rótum liðin ár.
Dóttursynir þínir fara aldrei á veiðar,
Eða við náttúruna takast á.
Ryðgaðir sleðans meiðar,
Minningar um horfin ár.
Kynsjúkdóminn greiddu dýru verði,
Falsiðólíin ókeypis með.
Og upp rísa skrautleg hverfi.
Hverfið segjir: "Þið eigið búa hér."
Er námurnar dóu,
Flutti draumurinn sig úr stað.
Tómar tóftirnar hlógu,
á hnjánum trúboðinn bað.
Til Danmerkur með stóra drauma,
Stórir draumar kosta mikið
Kynþáttahatrið þar kraumar,
Við viljum enga skrælingja hér.
Landi og þjóð í helgreip haldið,
í staðinn fáið þið brennivín og hass.
Danskt er yfirvaldið
Sem heimtar sleiktur sinn rass.
Þegar vitund þjóðar þinnar er vakna,
Horfir þjóð mín í aðra átt.
Húðlit sínum hún hampar,
Sem er hvítur,
þú veist við hvað er átt.
Ég á mér draum dagur komi,
þið losnið undan oki kúgarans,
þjóð þín frelsið lofi,
virtur réttur hvers manns.
Fyrirgefðu þjóð minni kæri bróðir.
Því hún stígur sinn eigin djöfladans.
Hún vill ekki sjá eymd þína bróðir.
Því hún samþykkir verk kúgarans.




Bubbi Morthens - Fingraför
Альбом Fingraför
дата релиза
22-05-1983




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.