Kaelan Mikla - Sírenur текст песни

Текст песни Sírenur - Kaelan Mikla



Saltið sefar sárin hans
Hann heldur sig hafa stjórn
En brimið blíða og öldurnar
Bjóða honum góða nótt
Í mókinu sér hann mynda fyrir
Öllu fegurri sýn
Alsett perlum, dáleiðandi dansar
Djúphafsdrottningin mín
Sírenur kalla, kalla mig heim
Kalla mig heim í hafið
Sírenur kalla, kalla mig heim
Kalla mig heim í hafið
Á dulartungu, til hans syngur
Hjarta hans hamast ótt
En augun tæla, tala til hans
Segja sofðu rótt
Grípa í hönd hans hreysturfingur
Draga hann í djúpin köld
Í svartnættinu birtir fyrir
Bjartri ljósveröld
Sírenur kalla, kalla mig heim
Kalla mig heim í hafið
Sírenur kalla, kalla mig heim
Kalla mig heim í hafið
Sírenur kalla, kalla mig heim
Kalla mig heim í hafið
Sírenur kalla, kalla mig heim
Kalla mig heim í hafið
Sírenur kalla, kalla mig heim
Kalla mig heim í hafið
Á botninum sér hann blasa við sér
Konungsríki hennar frítt
Tærir tónar af týndum heimi
Bjóða honum upphaf nýtt
Við altarið bláa brosir til hans
Brúður með hárið sítt
Hafið vefur þau örmum sínum
Og vaggar í svefninn blítt



Авторы: Bardi Johannsson, Margret Rosa Dorud Harrysdottir, Solveig Matthildur Kristjansdottir, Laufey Soffia Thorsdottir


Kaelan Mikla - Undir Köldum Norðurljósum
Альбом Undir Köldum Norðurljósum
дата релиза
15-10-2021




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.