Skálmöld - Skotta текст песни

Текст песни Skotta - Skálmöld



Skotta niður skarð
Skautar yfir barð
Illit í hyggju hefur
Heimafólkið sefur
Daginn áður dafnaði friður
En svo á einni nóttu
Mildur þeyrinn á midnætti
Var orðinn mannskaðaveður á óttu
Vorið flúði vinda handan
Og varga af öðrum heimi
Draugagangur i dalverpinu
er dauðinn sjálfur á sveimi
er dauðinn sjálfur á sveimi
Frost, þú mátt festa þinn
Fjötur við húsvegginn
Kynngi min kælir þil
Kæfandi ljós og yl
Skotta finnur skjól
Skriður yfir hól
Hallar sér í holu
Herðir frost með golu
Skotta húkir skammt fyrir ofan
Er skundar hann niður datinn
Blæs í frostið, blóðar á siðu
Hann er beygður maður og kvalinn
Gegnum litla glufu á veggnum
Hún gægist inn úr snænum
Draugur leikur við dreng og stúlku
er dauðinn sjálfur á bænum
er dauðinn sjálfur á bænum
Frost, þú mátt festa þinn
Fjötur við langeldinn
Kynngi min kæfir glóð
Krókna þá menn og fljöð
Ber hann þreyttur bál i kotið
Bæjargöngin gengur köld
Þróttur horfinn, þrekið brotið
Þetta eru málagjöld
Hlýnar mér er halir falla
Hatur nærir draugaþý
Heyrist Skottu kjaftur kalla:
"Kveikir þú upp eld á ný?"
Skotta
Skotta



Авторы: Baldur Ragnarsson, Snaebjorn Ragnarsson, Thrainn Arni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Jon Geir Johannsson


Skálmöld - Sorgir
Альбом Sorgir
дата релиза
12-10-2018




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.