Skálmöld - Ljósið текст песни

Текст песни Ljósið - Skálmöld



Ljósið dansaði, logar skinu
Það létti okkur veturinn, hrakti burtu kala
Ákaft brann i eldstæðinu,
ylur veitti svöngum
Skall á torfinu vestanvindur
Sem vakti ótal óhreinar hugsanir af dvala
Fingur alla frostið bindur
Er fýkur lif úr östkustó
Stakkur minn er storkinn köldu blóði,
Stendur hagl og illska mér í fang
Þungfær liggur þröngur bæjarslóði
Þreytist ég við dimman éljagang
Ljósið andaðist, logar dóu,
Við lágum tvö í myrkrinu, heyrðum börnin gráta
Tíðin var of góð á góu,
geldur harpa fyrir það
Draugagaddurinn bítur beinin
Hvað bældi niður glóðina? Það er snúin gáta
Hlusta ég á vesæl veinin
Og verð koma mér af stað
Niðadimm og náköld brennir móðan
Nálgast hjáleiguna, allt er hljótt
Fimbulnæturfrost mig setur hljódan
Ferja þarf ég eldinn heim í nótt
Í nótt fraus á tjörn
Í nótt dóu börn
Í nótt frusu litlar hendur í hel
Sem höfðu áður leik legg og skel
Í nótt fraus á tjörn
Brýst ég heim bæjarskör,
Ber með hnefa hurð af hjör
Birtan sýnir liðin lik,
Lokk af enni þeirra strýk
Konan fölnuð, börnin blá
Bædi liggja, hún þeim hjá
Kaldan horfi köstinn í
Kveiki ég upp eld á ný?
Kveiki ég upp eld á ný?
Littu út um ljórann, vinur,
Og leyfðu mér kveðja þig
Skálinn allur skekst og hrynur
Þá Skotta vildi gleðja sig



Авторы: Baldur Ragnarsson, Snaebjorn Ragnarsson, Thrainn Arni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson, Bjoergvin Sigurdsson, Jon Geir Johannsson


Skálmöld - Sorgir
Альбом Sorgir
дата релиза
12-10-2018




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.