Skálmöld - Höndin sem veggina klórar текст песни

Текст песни Höndin sem veggina klórar - Skálmöld



Tunglskinsbjört nóttin er tökum náðir.
Tveir liggja bræður og sofa báðir,
Móðirin vakir og ljósið líður,
Lognið er forleikur þess sem bíður.
Fjórtán á bænum, við brunnum inni,
Börnin í fangi á ömmu sinni.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Mannleysa og ber baki,
Bræðralaus og einskis maki.
Lögðum eld þínu þaki.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Haf- er yfir horfði örn
Herinn við Bæjartjörn.
Saklaus inni brunnu börn.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Sonur minn vaknaði aldrei aftur,
Ekki komst dóttir mín litla á legg.
Brunninn var fótur og brostinn kraftur,
Bærinn féll saman og á mig raftur.
Þá á mig sóttu loks þvogl og órar,
Þarna ég undir baðstofuvegg.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Sólin rís á og sýnir okkur bæinn,
Suðar yfir og litar ferskan blæinn.
Ekkert líf sjá og aldrei mun ég vakna,
Enginn segir frá og hvers er þá sakna?
Sólin rís á og sýnir okkur bæinn,
Suðar yfir og litar ferskan blæinn.
Ekkert líf sjá og aldrei mun ég vakna,
Enginn segir frá ...
Enginn segir frá ...
Enginn segir frá ...
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.



Авторы: Baldur Ragnarsson, Björgvin Sigurðsson, Gunnar Benediktsson, Jon Geir Johannsson, Snæbjörn Ragnarsson, þráinn árni Baldvinsson


Skálmöld - Sorgir
Альбом Sorgir
дата релиза
12-10-2018




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.