Svavar Knútur - Frá liðnu vori Lyrics

Lyrics Frá liðnu vori - Svavar Knútur



Fyrir þennan glugga hef ég gengið mörgum dögum
Hef gengið þar morgni dags, en oftar seint á kvöldin
Og hikandi ég beið þess þar bærðust gluggatjöldin
Og brjóst mitt hefur skolfið af þungum æðaslögum
Og hvítir armar birtust og hjartað brann af gleði,
Og hjartað brann af sorg ef þeir fólu sig í skuggann
Því hún var bara fimmtán ára og fyrir innan gluggann
Og fallegust af öllu því sem nokkru sinni skeði
Og vorið kom í maí, eins og vorin komu forðum
Með vængjaþyt og sólskin og næturkyrrð og angan
Og kvöld eitt niðri á bryggju hún kyssti mig á vangann
Það kvöld gekk lítið hjarta í fyrsta sinn úr skorðum
Já, skrýtið er hafa verið ungur einu sinni
Og það skuli hafa verið þessi sami heimur
Því þá var bara heimurinn handa okkur tveimur
En hitt var bara ástin sem brann í sálu minni
Og stundum enn, er byrjar vora um vesturbæinn
Mér verður á reika þangað einsömlum á kvöldin
En aldrei framar hvítir armar hreyfa gluggatjöldin
Og húsið verður sjálfsagt rifið einhvern næsta daginn




Svavar Knútur - Amma (Songs for My Grandmother
Album Amma (Songs for My Grandmother
date of release
21-11-2010




Attention! Feel free to leave feedback.