Svavar Knútur - Húmar Að Kveldi Lyrics

Lyrics Húmar Að Kveldi - Svavar Knútur



Húmar kveldi, hljóðnar dagsins ys,
Hnígur ægi gullið röðublys.
Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd,
Og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
Og ég þrái svefnsins fró.
Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró.
Syngdu mig inn í svefninn, ljúfi blær.
Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær.
Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd,
Og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
Og ég þrái svefnsins fró.
Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró.



Writer(s): Sigfús Einarsson


Svavar Knútur - Amma (Songs for My Grandmother
Album Amma (Songs for My Grandmother
date of release
21-11-2010




Attention! Feel free to leave feedback.