Svavar Knútur - Næturljóð úr Fjörðum Lyrics

Lyrics Næturljóð úr Fjörðum - Svavar Knútur



Yfir í Fjörðum allt er hljótt,
Eyddur hver bær hver þekja fallin.
Kroppar þar gras í grænni tótt
Gimbill um ljósa sumarnótt.
Ókleifum fjöllum yfirskyggð
Ein er þar huldufólksbyggð.
Bátur í vör með brostna
Bíður þar sinna endaloka.
Lagði hann forðum landi frá
Leiðina til þín, fjörðinn blá.
Aldrei mun honum ástin mín
áleiðis róið til þín.
Fetar þar létt um fífusund
Folaldið, sem í vor var alið.
Aldrei ber það um óttustund
ástina mína á vinafund.
Grær yfir leiði, grær um stein,
Gröfin er týnd og kirkjan brotin.
Grasrótin mjúka, græn og hrein
Grær yfir huldufólksins bein.
Grær yfir allt sem eitt sinn var,
ástin mín hvílir þar.



Writer(s): Bödvar Gudmundsson


Svavar Knútur - Amma (Songs for My Grandmother
Album Amma (Songs for My Grandmother
date of release
21-11-2010




Attention! Feel free to leave feedback.