Reykjavíkurdætur - Fiðringur текст песни

Текст песни Fiðringur - Reykjavíkurdætur



Yo Cheesy J,
Komin til rústa þínum heim
Finnur fyrir óöryggi smjúga inn í merg og bein
Ekki hrein, hrædd við fokkin sleggj'og stein
ég er það sem þú tekur með þér á eyðiey
En hey!
Ég er Bleachy P
ætl'ekki láta þig gleyma því
veina yfir pólitík
því hún bitnar á allri þjóðinní
Krummaskuði, svaka stuð hjá guðunum í gleðihruni
En þó ég ey muni er funheitur bruni innra með mér yfir - heimskunni
Samt kunni ég og kann
rapp'og gleðja sérhvern mann
Svo bjóðum fram annan kvenmann
Sem kann meira en nokkur gella
Hellað,
Hvað þú getur hugsað þér segja þegar ég er svona meyja sem myndi frekar deyja en þegja
Og vildi helst æp'á svona peyja sem reyna frá mér meira
Og viltu vita hvort ég var strita fyrir þínum svita og hita upp í rúmi undir súð og fullu tungli, er búið
Eyðileggja allt með leikjum? skemmtistaðasleikjum og heitum drengjum sem vilja verða fyrir sílíkon bleikjum og appelsínu tönuðum tank top gengjum?
Svo ég gekk honum hratt og brosti, kveikti svo í sígarettu og gaf honum kosti:
"Hey annaðhvort þá gefur þú mér snellu eða lærir hvernig á pikk'upp gellu"
Fiðringur í gegnum líkamann
Sviðsljósið í hvítu baðar mann
í kosmósinum höfum farveg skapað
Og þó tíminn líði
Kemst ég aldrei til baka
Orð skyndilega merkingu
Orka sem minnir á sprenginu
áfram byltingin á spjöldin ratar
Og ég veit ég kemst aldrei til baka
Yfir mér,
Er svitavíma
ælandinn'á baði á kvöldmatartíma
Korteríað tortíma rímum fortíðar í skímu martraðar og glímu framtíðar
því
ég er
óöryggið uppmálað
Andfúl og heyri hversu asnalega ég tala
Galað í höfuð mitt og kölluð á svið
Finn óöryggi alls ekki koma mér við
Svo ég bið og vil, ef til skil kannski fílar einhver rappara eins og mig
þangað til ég andanum, fram á við
Og held engin fíli skít eins og mig
Upp á svið:
Finn hjartað brenna, þarf grenna, alls ekki alls ekki vera verst kvenna, alls ekki detta, alls ekki gretta, finn á bakinu hárin spretta, hávaðinn vill mig húðfletta skvetta yfir mig blóðslettu blettum undan klósettum dettum fyrir marblettum
En þá man ég
ég er rauðhetta
Bleachy P, ég spilast eins og kasetta
Finn úr mér detta rímur, finn mig alsetta
Pretta, netta man ég er fokkin rappetta
Skvetti þá og beiti mínu hugskeyti sem heitir fokkin rímnateiti
(ó), vona ég breyti aldrei um leiti og neiti ekki mínum reiti
(Því), hér á ég vera er best í gera og vera myrkravera
Og mig langar ekki heim því hér er mitt geim skaltu bara hlust'og heyra
Fiðringur í gegnum líkamann
Sviðsljósið í hvítu baðar mann
í kosmósinum höfum farveg skapað
Og þó tíminn líði
Kemst ég aldrei til baka
Orð skyndilega merkingu
Orka sem minnir á sprenginu
áfram byltingin á spjöldin ratar
Og ég veit ég kemst aldrei til baka
Ah, eins og aftaka
ég fyrir mér kvenveruleika
Heita sleika, brjóst leika við
Hlutgervingu
Og hvernig á feika
Svo ég meika
Ekki lengur sitja
Bíða og biðja,
Fyrir byltingu brytja
Niður allar hugmyndir um hausverki og maus,
Ekki laus við áhyggjur um þráhyggjur
Sem náykkur köldum, segjandi í undiröldum:
hún átti það skilið
henni átt'að vera riðið
Hún sagðist fílaða fyrir tveim kvöldum
því það er það sem við höldum
Svo við stöndum kyrr
Færumst ekki framá við
Heldur bíðum eftir breytingum sem verða aldrei til
án þess vil-jinn fyrir hendi svo ég bendi á - staðreyndir
því það eru - nafngreindir
Nauðgarar í öllum heiminum
Saurgandi innyfli í konunum
Og hvar eru þeir staddir í heiminum?
Tjah, allavega ekki í fangelsum!
Svo stöndum upp, ekki víkja burt
Rappbyltingin er hafin ekki gefast upp
því misrétti er ekki upp á punt
Fyrir útrásavíkinga hengja upp
Nei, við fokkin vitum betur
Eigum orðið, aflið, sigrum þennan vetur
Heldur betur
Svo reyndu þá sem best getur
vera byltingin og vinna þessa depurð
Og vinna þessa depurð - vinnum þessa depurð




Reykjavíkurdætur - Reykjavíkurdætur ('Reykjavíkurdætur' by Reykjavíkurdætur)
Альбом Reykjavíkurdætur ('Reykjavíkurdætur' by Reykjavíkurdætur)
дата релиза
13-12-2014




Внимание! Не стесняйтесь оставлять отзывы.